ContactWhat is taxfree?
LanguageGerman (Deutschland)English (United Kingdom)Danish(DK)French (Fr)
Austria Denmark France Iceland Ireland Italy Norway Portugal Spain UK

Hvað er Tax Free?

Þegar verslað er Tax Free þýðir það að hægt er að fá virðisaukaskattinn endurgreiddan af þeim vörum sem fluttar eru úr landinu. Virðisaukaskatturinn er notaður til að greiða fyrir ýmsa félagslega þjónustu sem þegnar landsins geta nýtt sér. Þeir sem eru með lögheimili erlendis og nýta sér því ekki umrædda þjónustu hérlendis eiga því rétt á að fá þennan skatt endurgreiddan.

Meginreglurnar þrjár til að geta verslað Tax Free

- Viðkomandi verður að vera skráður með búsetu erlendis.
- Versla fyrir kr. 4000.- eða meira
- Flytja vöruna úr landi innan þriggja mánaða frá kaupdegi.

Hversu hár er virðisaukaskatturinn á Íslandi ?

Virðisaukaskatturinn sem er 25,5% á flestum vörum en 7% á matvælum og bókum. Þegar skatturinn er reiknaður af söluverðinu samsvarar hann annars vegar 20,32% í hærra skattþrepinu en 6,54% í því lægra.

Dæmi um hærra skattþrepið:
Verð á vöru m/vsk er kr.12.450
Virðisaukaskattur = 12.450*0,2032 = 2529,84

Þar sem virðisaukaskatturinn hérlendis er sá næsthæsti í heimi getur endurgreiðslan skipt miklu máli fyrir ferðamenn sem koma til Íslands.

Af hverju er endurgreiðslan aðeins 15% ?  

Mismunurinn er þóknun sem skiptist á milli verslana, endurgreiðsluaðila og þjónustuaðilans.

Hver er lágmarksupphæðin til að verslaTax Free ?

Þegar verslað er fyrir kr. 4.000.- í sömu verslun geta ferðamenn nýtt sér Tax Free.

 
Our contact in Iceland
Iceland Refund
Aðalstræti 2
101 Reykjavík

Tel:  +354 564 6400
Fax: +354 564 3600
About Us|What is Tax Free?|Shop Tax Free|Join Us